Moldovski baritónsöngvarinn Andrey Zhilikhovsky
heimsækir nú Ísland í annað sinn en hann fer með hlutverk greifans í uppfærslu
ÍÓ á Brúðkaupi Fígarós í Þjóðleikhúsinu.
Hann fór með tiltilhlutverkið í uppfærslu ÍÓ á
Évgení Onegin árið 2016 eftir að hafa sungið það í Bolshoj leikhúsinu í Mosvku
við frábæran orðstír.
Söngvarinn hefur á síðustu misserum sungið í
stærstu óperuhúsum víða í Evrópu og fer beint héðan á svið Metrópolitan
óperunnar. þar sem hann debúterar í La Boheme.
Hér má lesa nánar um Andrey: https://www.askonasholt.com/artists/andrey-zhilikhovsky/
Bjarni Frímann Bjarnason hljómsveitarstjóri er
tónlistarstjóri Íslensku óperunnar auk þess að gegna stöðu
aðstoðarhljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Hér má lesa nánar um Bjarna Frímann:
https://opera.is/is/folk/bjarni-frimann-bjarnason/
Andrey Zhilikovsky og Bjarni Frímann Bjarnason
flytja úrval sönglaga eftir Sergej Rachmaninov og Pjotr Tchaikovskí á þessum
kvöldtónleikum Íslensku óperunnar í Norðurljósum.