Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Kammermúsíkklúbburinn býður að venju upp á fjölbreytta tónleika, en dagskrá vetrarins og flytjendur verða kynnt síðar. Í Norðurljósum Hörpu fær kammertónlist af ýmsum toga að óma, perlur tónbókmenntanna, í flutningi tónlistarmanna úr fremstu röð.

Kammermúsíkklúbburinn hefur starfað óslitið frá árinu 1957. Markmið aðstandenda klúbbsins hefur frá upphafi verið að veita fremstu hljóðfæraleikurum þjóðarinnar vettvang til þess að flytja það besta og áhugaverðasta úr heimi kammertónlistar. Kammermúsíkklúbburinn byggir tilveru sína á traustum hópi félaga sem greiða árgjald í upphafi starfsársins. Tónleikarnir eru í áskrift fyrir félaga Kammermúsíkklúbbsins en annars öllum opnir. Til að gerast félagi sjá www.kammer.is

Tónleikaskrá 2019 – 2020

1.tónleikar, sunnudaginn 29. sept. 2019 kl. 16:00
Johannes Brahms: Píanókvintett í f-moll op 34
Sergei Taneyev: Píanókvintett í g-moll op. 30
Flytjendur: Trio Nordica (Auður Hafsteinsdóttir, fiðla; Bryndís Halla Gylfadóttir, selló; Mona Kontra, píanó). Ennfremur  Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðla og Þórunn Marinósdóttir, víóla

2.tónleikar, sunnudaginn 20. okt. 2019 kl. 16:00
W.A. Mozart: Klarínettutríó í Es-dúr K 498 (Kegelstatt)
Robert Schumann: Märchenerzälungen op 132
Flytjendur: Einar Jóhannesson, klarínetta; Þórunn Ósk Marinósdóttir,víóla; Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó

3.tónleikar, sunnudaginn 17. nóv. 2019 kl. 16:00
Felix Mendelssohn: Strengjakvartett í Es-dúr op 44.3
Franz Schubert: Der Hirt auf dem Felsen
Johannes Brahms: Klarínettutríó í a-moll op. 114
Flytjendur: Camerarctica

4.tónleikar, sunnudaginn 19. jan. 2020 kl. 16:00
Zoltán Kodály: Dúó fyrir fiðlu og selló op. 7
Sergei Rakhmaninov: Trio élégiaque nr. 2 í d-moll op. 9
Flytjendur: Páll Palomares, fiðla, Ólöf Sigursveinsdóttir, selló; Bjarni Frímann Bjarnason, píanó

5.tónleikar, sunnudaginn 8. mars. 2020 kl. 16:00
Verk eftir L.v. Beethoven, þ.á.m. Strengjakvartett op. 95
Flytjendur: Strokkvartettinn Siggi (Una Sveinbjarnardóttir, fiðla; Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðla; Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla; Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló)

6.tónleikar, sunnudaginn 15. mars 2020 kl. 16:00
M. Weinberg: Píanókvintett op. 18
A. Dvorák:     Píanókvintett í A-dúr op. 81

Flytjendur: Ásdís Valdimarsdóttir, víóla; Elisaveta Blumina, píanó o.fl.

Birt með fyrirvara um breytingar.