Steinunn Vala Pálsdóttir flautuleikari og
Hanna Lizinkiewicz píanóleikari flytja fjölbreytta efnisskrá með verkum eftir
þrjú ólík tónskáld af mismunandi kynslóðum 20. aldar. Sónatína (1945-49) eftir
Pierre Boulez,
Að vornóttum, fjögur næturljóð (1981) eftir Þorkel
Sigurbjörnsson og Arabesque fyrir flautu og píanó (2013) eftir Ewu Fabianska-Jelinska og verður það í fyrsta sinn sem verk eftir
hana er flutt á Íslandi.
Þær Steinunn Vala og Hanna kynntust í Malmö árið 2016 þegar Hanna var
meðleikari Steinunnar þegar hún var þar í mastersnámi.
Samvinna þeirra hófst
fyrir alvöru þegar þær unnu saman að flutningi Sónatínu Pierre Boulez fyrir
útskriftartónleika Steinunnar 2017.
Verkið er eitt af höfuðverkum tónbókmennta
20. aldar og því tilvalið að flytja það núna í nýju samhengi ásamt tveimur
eftirlætisverkum hvort eftir sinn landa þeirra, Þorkel Sigurbjörnsson og Ewu Fabianska-Jelinska.