Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Hið margverðlaunaða tónleikahús Harpa kynnir með stolti Reykjavik Classics sumarið 2018. Þá hefst þriðja starfsár þessarar einstöku tónleikaraðar sem bæst hefur í flóru hins fjölbreytta menningarlífs höfuðborgarinnar. Reykjavik Classics býður upp á klassíska tónlist í Eldborg í túlkun fremstu listamanna þjóðarinnar auk erlendra gestaflytjenda í einum af “tíu bestu tónleikasölum þúsaldarinnar.” (Gramophone)

Reykjavik Classics hefst 21. júní og stendur til 6. ágúst, með hádegistónleikum daglega, kl 12:30. Hverjir tónleikar eru 30 mín. án hlés og verða meistaraverk tónlistarsögunnar flutt á fjölbreyttum efnisskrám hverrar viku, t.d. eftir Mozart, Beethoven, Schumann og Mendelssohn. Listamenn Reykjavik Classics eru einleikarar úr fremstu röð. Listrænn stjórnandi er Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleikari