Kvennakór Háskóla Íslands býður til jólatónleika í Hörpuhorni þann 1.desember 2024 kl. 15:00. Sungin verða jólalög úr ýmsum áttum en þó inn á milli má greina þjóðlög af ýmsum toga. Sungið er á íslensku og ensku í þetta skiptið en kórinn hefur þá sérstöðu að hann skipa meðlimir frá ýmsum menningarheimum. Tónleikarnir taka um það bil 40 mínútur.
Stjórnandi er Lilja Margrét Riedel.
Enginn aðgangseyrir er inná tónleikana.