YouTube stjarnan Daniel Howell er á leiðinni til landsins með nýju uppistandssýninguna “We’re All Doomed!”.
Daniel er einn stærsti skemmtikraftur sinnar kynslóðar; hann er þekktur fyrir kaldhæðnislegan húmor og er ekki hræddur við að gera grín að sjálfum sér. Daniel er metsölubókahöfundur, stjórnandi verðlaunaþáttar á BBC Radio 1 og hefur sankað að sér yfir milljarð áhorfa á efnisveitum á borð við YouTube. Síðast þegar hann hélt uppistandssýningu fóru yfir hálf milljón manns á sýninguna hans í 18 löndum.
Þessi nýja sýning kemur á tímum þar sem heimurinn virðist tipla í áttina að tortímingu og getur það reynst freistandi að gefa sig á vald örvæntingarinnar. En með nægri kaldhæðni, ádeilu og ríflegri löngun til að hakka í sig allt sem er að samfélaginu: Dan er staðráðinn í að finna von fyrir mannkynið…eða að minnsta kosti hlæja eins og heimurinn sé að enda (því hann er sennilega að gera það).
Verðsvæðin eru sem hér segir:
Meet and Greet: 17.990 kr.
Úrvalssvæði: 11.990 kr.
Verðsvæði 1: 9.990 kr.
Verðsvæði 2: 8.990 kr.
Verðsvæði 3: 7.990 kr.
Verðsvæði 4: 5.990 kr.
Sjá mynd af sal hér
Meet and Greet upplýsingar:
Meet and Greet miði gefur þér eitt besta sætið í húsinu, aðganga að meet & greet með Dan, einstakan Doomed! varning og sérstakan for-aðgang að sölubásum fyrir varning.
Vinsamlega athugið: Þú getur aðeins fengið aðgang að meet & greet með Meet and Greet miða
Umsjón: Sena Live