Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

24. júlí – MOVE

Óskar Guðjónsson, saxófónn
Eyþór Gunnarsson, píanó
Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson, bassi
Matthías M.D. Hemstock, trommur

Óskar Guðjónsson stofnaði kvartettinn MOVE til að takast á við sígildasta form jazztónlistar; lúður með píanótríói. Undanfarin fjögur ár hefur kvartettinn æft reglulega og farið höndum um ýmsa tónlist með það fyrir augum að samstilla sig og opna möguleika á fjölbreyttri og óheftri nálgun í samleik og spuna. Á þessum tónleikum samanstendur efnisskráin af tónlist eftir Óskar sem til stendur að hljóðrita á næstunni.

Tónleikadagskrá Múlans sem er að öllu jöfnu bæði metnaðarfull og fjölbreytt er gott dæmi um þá miklu grósku sem einkennir íslenskt jazzlíf þar sem allir straumar og stefnur eiga heima. Áheyrendur geta hlustað á gæðajazz á góðu verði með frábæru útsýni yfir höfnina. Múlinn er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistarmanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans. Stofnár Múlans var haustið 1997 en fyrstu tónleikarnir fóru fram í ársbyrjun 1998. Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg og Tónlistarsjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.

Miðaverð á tónleikana er 3.000 krónur, 2.000 krónur fyrir eldri borgara og öryrkja og 1500 fyrir nema.

Skipuleggjendur Múlans eru þeir Ólafur Jónsson og Haukur Gröndal.