Tix.is

Um viðburðinn

UPPLÝSINGAR TIL TÓNLEIKAGESTA
Samkvæmt núgildandi reglugerð um sóttvarnir verða allir gestir að sýna neikvæða niðurstöðu úr hraðprófi við komu á þennan viðburð.
Hraðpróf eru aðgengileg víða, gjaldfrjáls og gildir í 48 klst 
Salnum er ennfremur skipt upp í þrjú svæði og grímuskyda er allan tímann.

Á höfuðborgarsvæðinu er hægt að fara í hraðpróf á eftirfarandi stöðum:

• Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins býður upp á hraðpróf á Suðurlandsbraut 34; www.hradprof.covid.is
• Covidtest; býður upp á hraðpróf bæði á Kleppsmýrarvegi 8 og í Hörpu. Aðstaðan í Hörpu er í kjallara hússins, beint á móti inngangi frá bílastæðakjallara. www.covidtest.is athugið að hraðprófsstöð í Hörpu lokar kl. 18
• Öryggismiðstöðin býður upp á hraðpróf við Kringluna og BSÍ; www.testcovid.is
Utan höfuðborgarsvæðis www.hradprof.covid.is

---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Okkur er það ánægja að staðfesta að tónleikaserían Björk Orkestral getur loksins farið fram í Eldborgarsal Hörpu á dögunum 11., 24., 31. október og 15. nóvember næstkomandi. Tónleikarnir hafa allir sína sérstöðu og ólíka dagskrá.

Á þessum viðburðum munu koma fram með Björk um það bil 100 íslenskir tónlistarmenn. Þetta er hátíð þar sem Björk heldur upp á samstarf sitt við tónlistarfólk frá Íslandi, sem starfað hefur með henni í hljóðverum og á tónleikum út um allan heim.

Björk mun flytja eigin tónsmíðar og útsetningar í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands, Hamrahlíðarkórinn, flautuseptetinn Viibra og fleiri gestum.

Samhliða tónleikunum fer fram söfnun til styrktar Kvennaathvarfinu.

Mánudagur 11. október. kl. 20:00 
Björk
Strengjasveit úr Sinfóníuhljómsveit Íslands
Stjórnandi Viktor Orri Árnason
Lög m.a. af Post, Vespertine og Dancer in the Dark

Sunnudagur 24. október kl. 17:00 
Björk
Hamrahlíðarkórinn
Stjórnandi Þorgerður Ingólfsdóttir
Bergur Þórisson – Orgel
Lög m.a. af Medúllu, Bíófílíu og Útópíu

Sunnudagur 31. október kl. 17:00 
Björk
Blásarasveit úr Sinfóníuhljómsveit Íslands. Björg Brjánsdóttir: Stjórnandi
Flautuseptetinn Viibra
Katie Buckley – Harpa
Bergur Þórisson - Raf básuna
Lög m.a. af Vespertine, Volta og Útópíu

Mánudagur 15. nóvmeber kl. 20:00 
Björk
15 manna strengjasveit úr Sinfóníuhljómsveit Íslands
Stjórnandi: Viktor Orri Árnason
Lög m.a. af Homogenic og Vulnicura.

UM TÓNLISTARMENNINA SEM KOMA FRAM MEÐ BJÖRK:

SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur verið leiðandi afl í íslensku tónlistarlífi í 70 ár. Hún heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og
einleikurum, en á einnig samstarf við listafólk úr öðrum greinum tónlistar.
Hljómsveitin hefur hljóðritað fyrir alþjóðleg útgáfufyrirtæki, meðal annars Sono Luminus og Deutsche Grammophon, og hlotið tilnefningu til Grammy-verðlauna fyrir besta hljómsveitardisk. Þá hefur hún haldið í ótal tónleikaferðir innanlands sem erlendis og meðal annars leikið á Proms-tónlistarhátíðinni í Royal Albert Hall og í Carnegie Hall í New York. Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur aðsetur í Hörpu. Aðalstjórnandi hljómsveitarinnar frá árinu 2020 er hin finnska Eva Ollikainen.

HAMRAHLÍÐARKÓRINN
Hamrahlíðarkórinn hefur verið leiðandi afl í íslensku tónlistarlífi í meira en fjóra áratugi. Meðlimir kórsins eru fyrrum
nemendur Menntaskólans við Hamrahlíð, þar sem Þorgerður Ingólfsdóttir stofnaði skólakór árið 1967 og stjórnaði honum til ársins 2017. Hamrahlíðarkórinn hefur gefið út fjölda hljómdiska sem hlotið hafa mikið lof og hefur einnig tekið þátt í flutningi fjölda stórra kórverka með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Kórinn hefur allt frá upphafi átt farsælt samstarf við íslensk tónskáld og yfir 100 tónverk hafa verið samin sérstaklega fyrir kórinn. Hamrahlíðarkórinn hefur ferðast til 26 þjóðlanda og komið fram á mörgum helstu kórahátíðum heims, meðal annars hátíðum í Evrópu, Norður-Ameríku og Asíu. Hamrahlíðarkórinn hóf samstarf sitt við Björk árið 2017, þegar hann söng á plötu hennar, Utopia. Samstarfið hélt svo áfram með Cornucopia-tónleikum í New York og Evrópu árið 2019.

FLAUTUSEPTETINN VIIBRA
Flautuseptetinn Viibra var stofnaður árið 2016 við gerð plötu Bjarkar, Útópiu. viibra vann náið með Björk við gerð plötunnar og ferðaðist með henni um heiminn á tónleikaferðalagi í kjölfarið. Hópurinn hefur því spilað sig saman undanfarin fjögur ár í nokkrum heimsálfum og sinnir auk þess sjálfstæðum störfum sem flautusveit.

Áshildur Haraldsdóttir
Berglind María Tómasdóttir
Björg Brjánsdóttir
Dagný Marinósdóttir
Melkorka Ólafsdóttir
Sólveig Magnúsdóttir
Steinunn Vala Pálsdóttir
Þuríður Jónsdóttir

Umsjón: Iceland Airwaves

Mynd af sal: