Tix.is

Um viðburðinn

Stóðhestaveltan er til styrkar landsliði Íslands í hestaíþróttum. Hver keyptur miði veitir aðgang fyrir eina hryssu undir hátt dæmdan stóðhest á árinu 2020. Girðingagjald er ekki innifalið. Dregið verður úr seldum miðum í beinni útsendingu á facebooksíðu LH  https://www.facebook.com/lhhestar

Listann yfir stóðhestana má finna á heimasíðu Landssambands hestamannafélaga www.lhhestar.is


Tollinn verður að nýta árið 2020 í samráði við gefanda eða umsjónarmann stóðhestsins. Handhafi miðans greiðir girðingargjald/húsnotkunargjald og kostnað við sónarskoðun óháð því hvort að hryssan fyljast eða ekki. Ef til þess kemur að stóðhesturinn verður í sæðingum og handhafi miðans ætlar að nýta sér það þá greiðir handhafi sæðingargjald hjá dýralækni. Ef hestur fer úr landi, drepst eða er ófær um að taka á móti hryssum á árinu 2020 er handhafi miðans beðinn um að leita til Landssambands hestamannafélaga.