Tix.is

Um viðburðinn

Birgir Haraldsson söngvari eða "Biggi Gildra" eins og sumir kalla hann kemur nú stormandi ásamt félaga sínum Sigurgeiri Sigmundssyni gítarleikara á Hard Rock 27. Mars. Nú mæta þeir til leiks með Hljómsveitina "Huldumenn" og kynna nýjan geisladisk, „ Þúsund ára ríkið“.

Hljómsveitin Huldumenn er skipuð þeim félögum ásamt "Skonrokkurunum" Birgi Nielsen trymbli og Ingimundi B. Óskarssyni bassaleikara. Á ljómborð leikur Akureyringurinn og Skriðjökullinn Jóhann Ingvason


Það er spennandi að fylgjast með þeim félögum sem hafa fært okkur
Gildruna, Gildrumezz, CCReykjavík, CCR bandið, Gullfoss og Skonrokk svo eitthvað sé nefnt enda munu vafalaust fljóta með gamlir Gildrusmellir og Creedence Clearwater slagarar.

Þetta er tónlistarviðburður sem enginn vill missa af.

húsið opnar kl 21

tónleikar hefjast kl 22

miðaverð 3900-