Tix.is

Um viðburðinn

Fimm stjörnu viðburður á Hótel Grímsborgum þar sem Jørgen Olsen annar
Olsens bræðranna sem unnu Eurovision keppnina eftirminnilega með
laginu „Fly on the Wings of Love“ árið 2000 verður með. Innifalið
miðaverði er þriggja rétta kvöldverður.

Tónleikarnir munu samanstanda af stærstu smellum þeirra Olsen-bræðra,
þar með talið auðvitað fræga Eurovision sigurlagið sem flutt var í
Stokkhólmi árið 2000 „Fly on the Wings of Love“. Ásamt því munu þeir
samanstanda af heimsfrægum smellum sem allir þekkja, lög af disknum
“Brothers to Brother” sem inniheldur lög eftir tónlistarmenn eins og Bee
Gees, Beach Boys, Everly Brothers og Bellamy Brothers til að einhverjir
séu nefndir. Á milli laga mun Jørgen Olsen slá á létta strengi.

Fimm stjörnu gistitilboð fyrir tónleikagesti

Í boði er sérstakt gistitilboð fyrir tónleikagesti, verð aðeins 34.100 kr. fyrir
tveggja manna 25m 2 Superior herbergi með morgunverðarhlaðborði, til að
bóka það hefur þú samband við Hótel Grímsborgir eftir miðakaup, sími 555
7878.

Umhverfið og Hótel Grímsborgir

Hótel Grímsborgir er glæsilegt, fyrsta vottaða fimm stjörnu hótel á Íslandi,
við Sogið í Grímsnesi. Eigendur og gestgjafar Hótel Grímsborga eru hjónin
Ólafur Laufdal og Kristín Ketilsdóttir og búa þau yfir áratugalangri reynslu í
hótel- og veitingageiranum þar sem þau ráku meða annars Broadway og
Hótel Ísland. Húsið opnar kl. 18:00 og fyrir tónleikana er boðið upp á
þriggja rétta kvöldverð.