Tix.is

Um viðburðinn

Leikfélag Flensborgarskólans í Hafnarfirði kynnir með stolti söngleikinn Mamma Mía! 

Undanfarin ár hefur leikfélag skólans staðið fyrir uppsetningum á glæsilegum söngleikjum og er engin undantekning á því í ár. Sýningin er byggð á samnefndri kvikmynd og er sýnd í hjarta Hafnarfjarðar, Bæjarbíói. Við lofum mikilli skemmtun og glæsilegum söngatriðum! 

Tryggið ykkur miða sem fyrst, þið viljið ekki missa af þessu!

Leikstjóri og handritshöfundur: Júlíana Sara Gunnarsdóttir

Söng-og tónlistarstjóri: Helga Margrét Marzellíusardóttir

Danshöfundur: Sara Dís Gunnarsdóttir

Uppsetning: Leikfélag Flensborgarskólans í Hafnarfirði

*Hópafsláttur gildir þegar keyptir eru 10 eða fleiri miðar saman.