Tix.is

Um viðburðinn

Evrópufrumsýning á kanadískri mynd eftir Justin Oakey frá Nýfundnalandi. Tveir ólíkir einstaklingar bindast óumbeðnum böndum þegar annað þeirra finnur lík við árbakka. Hann er gildruveiðimaður og hún er ung verðandi móðir. Saman þurfa þau að svara fyrir skuldir látins manns á flótta undan harðsvíruðum útlögum.