Tix.is

Um viðburðinn

Ný dagsetning er 10.október 2021. Allir keyptir miðar gilda áfram og fá miðahafar upplýsingar sendar með tölvupósti. Athugið að pósturinn gæti endað í ruslhólfi. 

-------

Óskars- og BAFTA verðlaunatónlist Hildar Guðnadóttur við JOKER flutt á Íslandi á tónleika-bíósýningu af Kvikmyndahljómsveit Íslands; SinfoniaNord. Stjórnandi verður faðir höfundarins, Guðni Franzson.

Margverðlaunuð kvikmyndatónlist Hildar Guðnadóttur verður flutt í Eldborg þann 10. október

JOKER fékk tvenn Óskarsverðlaun og þrenn BAFTA verðlaun á þessu ári.

Þar á meðal hlutu Hildur Guðnadóttir, fyrir bestu kvikmyndatónlistina og Joaquin Phoenix fyrir bestan leik í aðalhlutverki, verðlaun á báðum þessum verðlaunahátíðum. Bæði hrepptu þau einnig Golden Globe og Critics’ Choice verðlaun fyrir framlag sitt til kvikmyndarinnar.

Tónlist Hildar er þungamiðjan í tilfinningaþrunginni vegferð aðalpersónunnar Arthur Fleck í kvikmyndinni JOKER. Frábær blanda af hráum vélrænum hljóðheimi ásamt áleitnum og undurfögrum strengjatónum, oft einungis selló, skapar undirtón vonar og óbærilegrar spennu. Einstök tónlist Hildar öðlast nýtt líf í flutningi SinfoniaNord og framkallar alveg nýja upplifun á JOKER, kvikmynd leikstjórans Todd Phillips og margverðlaunaðri túlkun Joaquin Phoenix í aðalhlutverkinu.

Kvikmyndinni verður varpað á risastórt tjald í Eldborg með tali og áhrifahljóðum um leið og stór sinfóníuhljómsveit SinfoniaNord leikur magnþrungna tónlist Hildar.

Velgengni tónskáldsins á undanförnum misserum á sér nær engin fordæmi. Fyrir tónlist sína í sjónvarpsþáttaröðinni Chernobyl hefur hún hlotið Emmy og Grammy styttur auk fjölda annarra alþjóðlegra verðlauna. Fyrir tónlistina í JOKER bætti hún svo meðal annars við BAFTA verðlaunum og tók nú síðast við sjálfum Óskarnum, fyrst Íslendinga.

Hildur Guðnadóttir: “Það er mér mikið ánægjuefni að fá að sjá og heyra JOKER á kvikmyndasýningu með lifandi sinfóníuhljómsveit. Hljómsveitin kom með svo mikla dýpt og næmni í flutningi sínum þegar við hljóðrituðum tónlistina. Við bókstaflega héldum í okkur andanum meðan á upptökum stóð. Þetta var svo fallegt ferðalag og það gleður mig mjög að áhorfendur fái nú að njóta þess á sama hátt.”

Leikstjórinn, Todd Phillips: “Ég tala fyrir hönd okkar allra þegir ég lýsi ánægju minni með að JOKER verði synd á kvikmyndatónleikum. Að mínu mati er það frábær leið fyrir áhorfendur til að upplifa áleitna tónlist Hildar Guðnadóttir og verða vitni að för Joaquin Phoenix í heim geðveikinnar í hlutverki Arthurs.”

JOKER - LIVE IN CONCERT verður sýnt víða um Evrópu nú í vor á vegum enska viðburðafyrirtækisins Senbla 

SinfoniaNord náði nýverið samningum um að flytja stórkostlega tónlist Hildar í Eldborg þann 10. október 2021

16 ára aldurstakmark.