Tix.is

Um viðburðinn

Þann 4. mars næstkomandi mun Unglingaráð Fjörheima halda Góðgerðartónleika í Hljómahöll til styrktar Minningarsjóðs Ölla.

Unglingaráð Fjörheima samanstendur af ungum og öflugum ungmennum í 8.-10. bekk í Reykjanesbæ en hlutverk þeirra er að skipuleggja dagskrá, halda viðburði og taka þátt ýmsum öðrum störfum sem snerta félagsmiðstöðina. Einnig hefur unglingaráðið staðið í ströngu síðustu vikur við að afla styrkja frá fyrirtækjum og stofnunum á svæðinu til þess að tónleikarnir gætu orðið að veruleika.  

Unglingaráðið kaus að styrkja Minningarsjóð Ölla því þau telja að íþróttir- og tómstundastarf sé besta forvörnin fyrir ungmenni og þess vegna liggur þetta málefni þeim nærri. Minningarsjóður Ölla styrkir börn til íþróttaiðkunar sem ekki eiga kost á því vegna bágrar fjárhagsstöðu foreldra eða umsjónarmanna. 

Hugmyndin þeirra var að fá tónlistarfólk sem eiga rætur sínar að rekja til Reykjanesbæjar á einn eða annan hátt. Þeir tónlistarmenn sem munu stíga á svið eru Valdimar Guðmundsson ásamt Ásgeiri Aðalsteinssyni gítarleikara, Már Gunnarsson, Ísold Wilberg, Hljómsveitin Demo, Frid og Sesselja Ósk Stefánsdóttir.  

Tónleikarnir verða í Hljómahöll þann 4. Mars frá 20:00-22:00. Húsið opnar kl: 19:00.  

Miðaverð: 3.000 krónur.  

Allur ágóði rennur til Minningarsjóðs Ölla.