Tix.is

Um viðburðinn

Í tilefni af því að Lindin, kristið útvarp, er 25 ára í mars, efnum við til veglegra afmælistónleika laugardaginn 7. mars, kl. 20, í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu, Hátúni 2 í Reykjavík

Á tónleikunum heyrum við mörg af þeim frábæru lögum sem hlustendur Lindarinnar hafa notið síðustu 25 árin. Fram koma:

Hjalti Gunnlaugsson
Fanny K. Tryggvadóttir
Stefán Birkisson
Hrönn Svansdóttir
Edgar Smári
Maríanna Másdóttir
Páll Rósinkranz
Íris Lind
Operation Big Beat
Inga María
Ívar Halldórsson
Gospelkór Fíladelfíu

Boðið verður upp á léttar veitingar fyrir tónleikana eða frá kl. 18:30.

Miðaverð er 4.900 kr. - - TRYGGÐU ÞÉR ÞITT SÆTI - -

Ath! Tónleikarnir koma í stað Opna Hússins á Lindinni, sem venjulega hefur verið í Krókhálsinum á þessum síðasta degi afmælisvikunnar.