Tix.is

Um viðburðinn

Þegar gefnar eru út plötur er tilvalið að halda útgáfutónleika. Það má raunar segja að það séu einu skiptin þar sem slíkt er siðferðilega réttlætanlegt. Þess vegna ætla Ljótu hálfvitarnir að fagna útgáfu sinnar 6. plötu, Hótel Edda, með tvennum útgáfutónleikum föstudaginn 3. og laugardaginn 4. júlí á Græna hattinum. Þar verður leikinn og sunginn bróðurparturinn af nýju plötunni í bland við eldri lög. Stemming og stuð samkvæmt hálfvitskum Evrópustöðlum og engin þörf á að taka góða skapið með, það verður mætt á undan ykkur.

Miðaverð 4.500 kr. Forsala á tix.is, graenihattturinn.is og á Backpackers

ATH! Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 út af þessum hliðstæðu tímum.