Tix.is

Um viðburðinn

Vegna forfalla hafa miðar losnað og við höfum opnað fyrir sölu aftur.

Það er gott að eiga von á gleðistund til að fagna sigri eða taka stund milli stríða.

Ákveðið hefur verið að færa tónleikana í Eldborgar sal Hörpu, en með því getum við loksins haldið Sumarhátíð Helga Björns með pompi og prakt en um leið tryggt fjarlægðarmörk.

Það gleður okkur að tilkynna að nýjar dagsetningar hafa verið staðfestar og þær eru:

27. ágúst kl. 18.00 og kl. 21.30.

28. ágúst kl. 18.00 og kl. 21.30.

Allir miðahafar hafa nú fengið sendan tölvupóst um breytinguna.

Förum varlega og verið góð við hvort annað. Við hlökkum mikið til að sjá ykkur!

Bestu kveðjur,
Helgi Björnsson, Reiðmenn Vindanna og fleiri góðir