Tix.is

Um viðburðinn

Axel O Band verða með tónleika á Græna Hattinum Laugardaginn 14.mars 2020. Axel O er aðdáendum sveitatónlistar á Íslandi vel kunnur sem einn helsti söngvari landsins á sviði sveitatónlistar um þessar mundir. 

Axel sem hefur m.a. átt lag í fyrsta sæti á vinsældarlista Rásar 2 undanfarnar vikur, flytur eigin lög og sígild lög úr sveitatónlistinni með hljómsveit sinni Axel O Band. 

Hljómsveitina Axel O Band skipa þeir: 

Axel O söngur og gítar
Magnús Kjartansson píanó
Sigurgeir Sigmundsson gítar og pedal steel
Birgir Nielsen trommur
Finnbogi Kjartansson bassi
Dan Cassidy fiðla 

Þetta er eitthvað sem aðdáendur sveitatónlistar mega ekki missa af.