Tix.is

Um viðburðinn

Stórskemmtileg gamanmynd sem kitlar hláturtaugarnar! Gullfiskarnir munu taka þig í ógleymanlegt ferðalag!

Óliver er með allt á hreinu, ungur bankamaður á uppleið. Einn daginn lendir hann í bílslysi og þarf að takast á við nýjan veruleika í hjólastól í kjölfarið.

Á endurhæfingaheimilinu kynnist hann hópi fjölbreyttra persóna sem kalla sig "gullfiskana" Þau komast á snoðir um auðvelda leið til þess að afla sér peninga og upphefst æsispennandi og sprenghlægileg atburðarás.