Tix.is

Um viðburðinn

Danspartý Dans og Kúltúr hafa slegið í gegn á síðustu árum þar sem danskennsla og sýningar mætast. Nýr áratugur hefst með því að horfa aftur til fortíðar um 100 ár og býður Dans og Kúltúr upp á ,,Roaring 20´s” danspartý á Hard Rock fimmtudaginn 13.feb kl. 20:00.


Takið fram kögrið, fjaðrirnar, slaufuna og pússið skónna því það mun vera dansað þetta kvöld. Danskennsla og skemmtiatriði með dönsurunum og forsprökkurum Dans og Kúltúr, Önnu Claessen og Friðriki Agna ásamt sérstökum gestaatriðum með Burlesque stjörnunni Maríu Callista og Lalla Töframanni!


Ekki missa af þessari stórkostlegu skemmtun. Miðaverð einungis 2000 kr.
Drykkur fylgir með (léttvín/bjór) fyrir þá sem mæta á milli 20 og 21.
Miðasala á Tix.is


Um Dans og Kultur, www.dansogkultur.is
Fylgið dansogkultur á facebook og instagram