Tix.is

Um viðburðinn

Hannesarholt hlúir að innsta kjarna íslenskrar menningar: sönghefðinni og býður uppá samsöng fyrir alla, unga sem aldna, íslendinga sem aðflutta, undir stjórn kunnáttufólks. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum, sem greiða 1000 króna aðgangseyri. Textar birtast á tjaldi og allir taka undir.

Ingvar Valgeirsson leiðir söngstundina sunnudaginn 1.mars kl.14. Ingvar hefur starfað sem trúbador í fjöldamörg ár og leikið um allt land.

Veitingastofur Hannesarholts eru opnar frá kl.11.30-17.