Tix.is

Um viðburðinn

Björn Bragi Djöfulsson er nýtt uppistand Björns Braga en leikkonan og grínistinn Anna Svava hitar upp. Sýningin var frumsýnd í Gamla bíói í haust og hefur hlotið frábærar viðtökur en hún hefur verið sýnd fyrir yfir fjögur þúsund gesti.

Björn Bragi hefur verið á meðal vinsælustu uppistandara landsins undanfarin ár. Hann hefur lengst af komið fram með Mið-Íslandi og sýnt hátt í 500 uppistandssýningar með hópnum um allt land. Í nýju sýningunni er Björn Bragi á persónulegri nótum en áður og hann og Anna Svava draga ekkert undan.

Skotheld skemmtun þar sem allt er látið flakka!