Tix.is

Um viðburðinn

Hjartalaga hrútspungar og mysulagðir marenstoppar! Dömur og herra bjóða til Valentínusarblóts á Kornhlöðunni 15. febrúar þar sem súrt og sætt rennur saman á all þjóðlegan og alþjóðlegan hátt. Þar mætast í djörfum tangó og einörðum skottís Þorri og Valentínus, þorraþrællinn og ástarengillinn og takast á um yfirráðin yfir febrúar. Því hver vill ekki eiga febrúar?

Miðaverð er að vanda 2200 krónur í forsölu og 2900 við innganginn.

Um sjónræna upplifun er að ræða og því ekki nauðsynlegt að skilja íslensku. Myndatökur eru með öllu bannaðar á sýningunni en þú finnur myndir og minningar á Instagram.