Tix.is

Um viðburðinn

Hljómsveitin Brek fagnar sinni fyrstu útgáfu með tónleikum í Kornhlöðunni. Hljómsveitin sendir frá sér sín fyrstu lög í byrjun árs og ætla sér að gefa út meira efni árið 2020.
Flutt verður frumsamið efni í bland við tökulög færð í þeirra búning, akústíkan og hlýlegan.
Brek skipa þau Harpa Þorvaldsdóttir, Jóhann Ingi Benediktsson og Guðmundur Atli Pétursson.
Ásamt Brek kemur fram tónlistarkonan Ingunn Huld.
Ingunn er söngvaskáld sem hefur gefið út plötuna Fjúk (2015) og lögin Splendid (2017) og A Bathroom Gained (2019). Innan skamms mun hún senda frá sér smáskífu með nýjum lögum.
www.ingunnhuld.com
Tónleikarnir hefjast kl. 20:30
Aðgangseyrir eru litlar 2000 kr.