Tix.is

Um viðburðinn

 Ráðstefnunni hefur því verið frestað til 2. maí 2022
Allir miðahafar fá sendan póst frá midasala@harpa.is, athugið að pósturinn gæti lent í ruslhólfinu ykkar. 

SVEFN er 3ja tíma ráðstefna þar sem farið verður ítarlega yfir mikilvægi svefns fyrir einstaklinginn, fjölskylduna, fyrirtæki og samfélagið í heild.

Dr. Matthew Walker er prófessor við Berkeley háskóla og sérfræðingur í svefni, sálfræði og taugalífeðlisfræði. Hann er virtur vísindamaður á þessu sviði og hefur birt fjölmargar ritrýndar vísindagreinar og er höfundur bókarinnar Why we sleep sem hefur farið sigurför um heiminn sl. ár og opnað augu almennings fyrir mikilvægi svefns fyrir heilsu, vellíðan og árangur.

Dr. Erla Björnsdóttir er stofnandi og framkvæmdastjóri Betri svefns. Erla er klínískur sálfræðingur og doktor í líf- og læknavísindum og sérfræðingur í svefnrannsóknum. Erla hefur birt fjölda greina í erlendum ritrýndum tímaritum og skrifað mikið um svefn á innlendum vettvangi og gaf út bókin Svefn með Forlaginu árið 2017 og barnabókina Svefnfiðrildin árið 2020.

Dagskrá:
Dr. Alma Möller landlæknir opnar ráðstefnuna

16.00 - 16:10  Opnun - Dr. Alma Möller, landlæknir 
16:10 - 16:50  Svefn menning á Íslandi - sofa konur nóg? Dr. Erla Björnsdóttir
16:50 - 17:10  Róandi lyf og svefnlyf - er langtímanotkun þeirra hættuleg? Lárus S. Guðmundsson lyfja- og 
17:10 - 17:30 Hlé 
17:30 - 17:50  Hvernig getum við brugðist við svefnvanda barna og ungmenna? Dr. Erlingur Sigurður Jóhannsson
17:50 - 18:10  Er syfja lúmskur skaðvaldur? Dr. Erna Sif Arnardóttir
18:10 - 18:50  Hvers vegna sofum við? Dr. Matthew Walker
18:50 - 19:00  Svefn ávarp Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra

Hægt er að nýta réttindi til niðurgreiðslu hjá stéttarfélögum fyrir ráðstefnuna.