Tix.is

Um viðburðinn

Jóhannesarpassía Bachs í flutningi þriggja afburðatónlistarmanna með þátttöku tónleikagesta.

Þessi einstæði flutningsmáti Jóhannesarpassíunnar hefur slegið í gegn í Þýskalandi og Hollandi. Benedikt Kristjánsson tenórsöngvari syngur passíuna frá upphafi til enda í samspili við orgel, sembal og fjölbreytt slagverkshljóðfæri. Verkefnið hlaut nýlega hin virtu Opus Klassik-verðlaun í flokknum Framsæknir tónleikar. Kirkjugestir taka þátt í sálmasöngnum.

Flytjendur:
Benedikt Kristjánsson tenór
Elina Albach sembal- og orgelleikari
Phillip Lamprecht slagverksleikari