Tix.is

Um viðburðinn

Vox Domini var haldin í fyrsta sinn í janúar 2017 og fór þátttaka fram úr björtustu vonum.

Félag íslenskra söngkennara (FÍS) stendur fyrir söngkeppnininni Vox Domini, en hún er fyrst og fremst hugsuð fyrir söngvara og nemendur í klassískum söng sem eru að stíga sín fyrstu skref á ferlinum.

Fyrir nokkrum áratugum var keppni af þessu tagi haldin af RÚV, en að öðru leiti hefur vettvangur sem þessi ekki verið í boði fyrir nemendur íslenskra tónlistarskóla með reglulegum hætti fyrr en nú.

Umgjörð keppninnar er svipuð og í keppnum erlendis, dómnefnd verður ætíð skipuð aðilum sem hafa mikla reynslu á sviði sönglistar.  

Allir eru velkomnir á miðaverði er haldið í algeru lágmarki til að gera öllum kleyft að mæta og gleðjast með nemendum sem stíga á stokk.