Tix.is

Um viðburðinn

Kvikmyndadagarnir Nordisk Film Fokus verða að þessu sinni haldnir í samstarfi við nýju hátíðina Reykjavík Feminist Film Festival dagana 16.-19. janúar. Dagskráin í Norræna húsinu setur fókusinn á norræna kvenleikstjóra og sjálfsmynd sem viðfangsefni. Sýndar verða nýlegar, norrænar kvikmyndir og boðið upp á umræður við leikstjóra myndanna og aðra fulltrúa þeirra.

Nordisk Film Fokus kynnir norsku myndina Hva vil folk si/What Will People Say. Myndin er á norsku með enskum texta (106 mín.) Leikstjóri myndarinnar er Iram Haq.

Ókeypis er á sýninguna en tryggið ykkur miða hér á tix.is til að vera örugg með sæti.

Um myndina
Myndin segir sögu Nisha, sem er hálf pakistönsk og hálf norsk og er send gegn vilja sínum til Pakistan eftir að faðir hennar kemur að henni í rúminu með manni.

Sýnishorn

 

Dagskrá Nordisk Film Fokus
Dagskrá Reykjavík Feminist Film Festival