Tix.is

Um viðburðinn

Kvikmyndadagarnir Nordisk Film Fokus verða að þessu sinni haldnir í samstarfi við nýju hátíðina Reykjavík Feminist Film Festival dagana 16.-19. janúar. Dagskráin í Norræna húsinu setur fókusinn á norræna kvenleikstjóra og sjálfsmynd sem viðfangsefni. Sýndar verða nýlegar, norrænar kvikmyndir og boðið upp á umræður við leikstjóra myndanna og aðra fulltrúa þeirra.

Nordisk Film Fokus kynnir sænsku myndina Beyond Dreams/Dröm Vidare. Myndin er á sænsku með enskum texta (90 mín.). Leikstjóri myndarinnar er Roida Sekersöz.

Ókeypis er á sýninguna en tryggið ykkur miða hér á tix.is til að vera örugg með sæti.

Um myndina
Mirja er nýsloppin úr fangelsi og getur varla beðið eftir að komast loks í burtu með vinkonum sínum og skilja við ömurlegt líf í úthverfinu Alby í Stokkhólmi. Þær vilja fara til Montevideo, sem allra fyrst. En fjöldi vandamála bíður Mirju heima. Móðir hennar er atvinnulaus, keðjureykjandi og veik og það er ekkert til í ísskápnum fyrir litlu systurina að grípa í. Mirja þarf vinnu sem fyrst en hvernig getur hún samrýmt hefðbundið vinnulíf án þess að fórna vinkonunum og þeirra sameiginlegu draumum?

Dagskrá Nordisk Film Fokus
Dagskrá Reykjavík Feminist Film Festival