Tix.is

Um viðburðinn

Hin unga listakona Marianne er ráðin í verkefni að mála portrett af Héloïse, tilvonandi brúði ríkrar fjölskyldu, sem hefur ítrekað neitað að sitja fyrir því hún neitar að giftast manninum sem til stendur að binda hana við. Marianne dulbýr sig sem vinnukonu til að ávinna sér traust hennar en ekki líður á löngu þar til hún verður ástfangin af fyrirsætunni.

Myndin keppti um Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni Cannes 2019 þar sem hún hreppti Queer Palm verðlaunin en um er að ræða fyrstu kvikmyndina sem leikstýrð er af konu sem hlýtur þau verðlaun. Einnig hlaut Celine Sciamma verðlaun fyrir besta handritið á hátíðinni. Myndin er frumsýnd á Frönsku kvikmyndahátíðinni en heldur áfram í almennum sýningum í Bíó Paradís.

Myndin er á frönsku og verður sýnd með íslenskum og enskum texta á víxl!

"Sciamma færir erótíkina nær huganum. ... stórkostlegt og glæsilegt táknrænt drama sem fær áhorfendur til að skjálfa af fagurfræðilegri ánægju og ótta" - -The Guardian