Tix.is

Um viðburðinn

Brrrrrlesk

Hvað er betra til að ná úr sér kuldahroll og almennum vetrardrunga en að njóta sviðslista nýjasta burlesque hóps Íslands? Túttífrútturnar slá ekki slöku við heldur bjóða upp á sjóðheitt brrrrlesk show til að bræða hug og hjörtu. Burlesk er sviðslistaform sem einblínir á jákvæða líkamsímynd sem er endurspeglað í gríni, dans og almennum gleðilátum. Oft er því um hold og fullorðinshúmor um að ræða og sýningin ætluð 20 ára og eldri.

Upphitun í aðdraganda Brrrrlesk sýningarinnar, myndir og brot frá fyrri sýningum Túttífrútti má finna á https://www.instagram.com/tuttifrutturnar/

Miðaverð í forsölu: 2.200

Miðaverð við hurð: 2.900