Tix.is

Um viðburðinn

Frá því að Sólstafir gáfu út plötuna Berdreyminn árið 2017 hefur sveitin fylgt henni eftir á tónleikaferð um Norður og Suður Ameríku, Evrópu og Ástralíu ásamt tugum af tónlistarhátíðum um víða veröld.

Nú er komið að loka hnykk Berdreyminn tónleikaferðalagsins, og er sveitin nú þegar byrjuð á að semja næstu plötu.

Einnig fagnaði platan Köld 10 ára afmæli á síðasta ári og lék sveitin alla þá plötu á sérstöku “Köld tónleikaferðalagi” síðastliðinn desember. Má því búast við að þó nokkuð efni af Köld verði leikið.