Tix.is

Um viðburðinn

Laugardagskvöldið 18. janúar kemur íslensk-norski jazzkvartettinn Astra fram á Hendur í Höfn í Þorlákshöfn.

Astra skipa saxafónleikarinn Sigurður Flosason, gítarleikarinn Andrés þór, kontrabassaleikarinn Andreas Dreier og trommuleikarinn Anders Thoren. Allir hafa þeir mikla og fjölbreytta reynslu bæði frá heimalöndum sínum og alþjóðlega. Astra vinnur þessa dagana að upptöku nýrrar hljómplötu en hún mun innihalda tónlist eftir alla meðlimi hljómsveitarinnar.
Platan kemur út hjá AMP útgáfunni í Noregi.


Hendur í höfn í Þorlákshöfn er huggulegt veitingar- og mennigarhús.

Tónleikagestum er bent á að panta sér borð á hendurihofn@hendurihofn.is hafi þeir hug á að borða fyrir tónleika.