Tix.is

Um viðburðinn

Hugsanalestur, flugbeitt rakvélablöð og sjónhverfingar á heimsmælikvarða er meðal þess sem Ingó Geirdal býður upp á í magnaðri töfrasýningu sem rokkar!

Ingó Geirdal er tvímælalaust reyndasti töframaður Íslands en hann hefur sýnt ótrúleg töfrabrögð sín í yfir 40 ár á skemmtunum og í sjónvarpsþáttum víðsvegar um heim.

Ingó er jafnframt eini íslenski töframaðurinn sem hefur verið fenginn til að koma fram á Norðurlandamóti töframanna, auk þess að skemmta í einkaboðum fyrir rokkstjörnur eins og Alice Cooper og Depeche Mode.

Margir þekkja Ingó þó einnig sem tónlistarmann og gítarleikara m.a. með Bubba Morthens, Quarashi og DIMMU.

Flugbeitt rakvélablöð, hugsanalestur og sjónhverfingar á heimsmælikvarða er meðal þess sem Ingó býður upp á í magnaðri töfrasýningu sem rokkar!