Tix.is

Um viðburðinn

Akasha er tíðnisvið sem geymir orkulegar upplýsingar um allt sem sálin þín hefur gert í fortíð, nútíð og framtíð í gegnum öll líf og allar víddir. Það tengir okkur við þá endalausu möguleika sem við búum yfir í tíma og rúmi, línulega og ólínulega. Vertu með í ferðalagi inn að rótum í gegnum tónheilun, virkjun þinnar eigin raddar og djúpa slökun. Skynjaðu og skildu það sem orð ná ekki yfir. Kristalalkemíuskálar, gong og fleiri hljóðgjafar verða okkur til aðstoðar sem og hjartaopnandi og heilagt kakó.

Athöfnin kostar 5000 krónur. Takmarkað pláss er í boði og því nauðsynlegt að bóka pláss. Ef einhverjar spurningar vakna er þér velkomið að hafa samband í gegnum tölvupóst á kamilla@kako.is. Lífspekifélagið er í Ingólfsstræti 22, 101 Reykjavík. 

Kakóið sem við drekkum frá regnskógum Guatemala er svokallað “ceremonial grade cacao” og sannkölluð ofurfæða. Kakó er blóðflæðisaukandi, hefur jákvæð áhrif á úthald og orku, minnkar bólgur, ýtir undir framleiðslu á gleðiboðefninu serótónín, lækkar streituhormónið kortisól og örvar vellíðunarstöðvar í heilanum og framleiðslu á endorfíni. Hér má lesa nánar um kakó.

KakóRó leiðir Kamilla Ingibergsdóttir yogakennari og tónheilari en hún hefur stundað yoga og hugleiðslu um árabil og kakóið hefur reynst henni dásamlegur hjálpari í gegnum ýmis verkefni í lífinu. Hér má lesa meira um Kamillu.

Nokkur góð ráð fyrir athöfn:
-Borðaðu létta máltíð fyrir athöfn og helst nokkrum tímum áður en hún hefst. Það er líka í boði að fasta.
-Ekki er ráðlagt að drekka kaffi sama dag og athöfnin fer fram.
-Áfengi og kakó fara ekki vel saman og því ráðlagt að drekka ekki áfengi kvöldið áður.
-Klæðstu þægilegum fatnaði. Það eru dýnur, teppi og púðar á staðnum en einnig er hægt að koma með sitt eigið. 
-Láttu mig vita ef þú tekur inn geð- eða hjartalyf og ég get ráðlagt þér hvort eða hversu mikið kakó gott er að drekka.