Múlinn
Jazzklúbbur: Bara Gaman
Tumi Árnason, saxófónn
Magnús Jóhann, píanó og hljómborð
Mikael Máni Ásmundsson, gítar
Valdimar Olgeirsson, bassi
Bergur Einar, trommur
Nokkur af ungu ljónum Íslandsjazzins koma hér saman til að hafa gaman af
því að flytja orkumiklan og melódískan samtímajazz. Hljómsveitin Bara
gaman er nýstofnuð hljómsveit fimm ungra tónlistarmanna sem allir koma
úr sama umhverfi en hafa þó farið í ólíkar áttir á sínum ferli. Þeir eru
virkir í tónlistarlífinu á Íslandi þar sem þeir leika allt frá poppi
til tilraunartónlistar. Hljómsveitin spilar tónlist eftir alla
hljómsveitarmeðlimi sem fellur undir hina stóru jazzregnhlíf.