Múlinn Jazzklúbbur: Til heiðurs Wes Montgomery
Ásgeir Ásgeirsson, gítar
Agnar Már Magnússon, orgel og píanó
Þorgrímur Jónsson, bassi
Erik Qvick, trommur
Kvartett Ásgeirs Ásgeirssonar heiðrar gítarleikarann Wes Montgomery. Á
þessu ári eru 60 ár frá því að Wes gaf út plötuna “Incredible Jazz Guitar”
sem var upphafið af goðsagnakenndri plötuútgáfu hans fyrir
plötufyrirtækið Riverside. Meginuppistaða í plötuútgáfu Montgomery voru
jazzstandardar og eigin tónsmíðar en á síðari hluta ferilsins gaf hann
einnig út popplög í eigin útsetningum. Wes er án efa einn áhrifamesti
jazzgítarleikari sögunnar. Á þessari notalegu kvöldstund verður
stiklað á stóru í tónum og tali og farið verður yfir
hljóðritunarferil Montgomery sem spannaði innan við áratug, hann lést
langt um aldur fram árið 1968, aðeins 45 ára gamall.