Tix.is

Um viðburðinn

Rebecca Scott Lord og Rúnar Örn Jóhönnu Marinósson bjóða ykkur hjartanlega velkomin á Jólaglaðning sinn í Þjóðleikhúskjallaranum að kvöldi 19. desember! Þar bjóða þau upp á fjölbreytta dagskrá til að fylla áhorfendur af sönnum jólaanda. Góðir gestir mæta og verða með atriði, það verður sungið, leikið á hljóðfæri, lesnar jólasögur, ný hátíðarmyndbandsverk verða flutt, gjafir búnar til og margt margt fleira. Kíkið við og eigið með okkur notalega kvöldstund til að fagna komu jólanna!

Meðal þáttakenda eru:

Örn Árnason
Drengurinn Fengurinn
Hildur Evlalía Unnarsdóttir
Ylfa Þöll Ólafsdóttir
Brett Smith
Viddi Blöndal
og fleiri!

Húsið opnar 19:30 en herlegheitin hefjast 20:00. Miðaverð er 1.000 krónur og fást miðar í forsölu á tix.is eða við hurð.