Tix.is

Um viðburðinn

Á tónleikunum Út við himinbláu sundin verða gömlu góðu söngkonurnar heiðraðar og saga þeirra rifjuð upp í tali og tónum ásamt gömlu lögunum sem þær gerðu vinsæl og hafa lifað með þjóðinni í mörg ár.

Söngkonur eins og Svanhildur Jakobs, Erla Þorsteins, Erla Stefáns, Hallbjörg Bjarna, Adda Örnólfs, Soffía Karls, Helena Eyjólfs og Mjöll Hólm!

Þess má til gamans geta, að þrjár af þessum söngkonum verða með okkur, en þær eru Helena Eyjólfs, Svanhildur Jakobs og Mjöll Hólm

Aðrar söngkonur eru

Hugrún Sif Hallgrímsdóttir

Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm

Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir 

Hljómsveitarstjóri er Rögnvaldur Valbergsson

Sögumaður og kynnir Valgerður Erlingsdóttir

Viðburðarstjórnun og hugmynd Hulda Jónasdóttir