YLJA og Húsið / creative space ætla að bjóða ykkur upp á sannkallað jólagúmmelaði í aðventulok!
Þær Gígja og Bjartey ætla að hella sér í glas og hefja upp raust sína í Húsinu Patreksfirði föstudagskvöldið 20. desember.
Tökum okkur hlé frá amstrinu, skolum niður rammíslensku jólabruggi við undursamlega aðventutóna í Bryggjuhverfinu og kjörnum okkur saman fyrir hátíðarnar í algleymingi!