Söngvarinn, lagahöfundurinn og tónskáldið Damon Albarn flytur nýja
verkið sitt The Nearer the Fountain, More Pure the Stream Flows í
heild sinni í Eldborg, Hörpu 11. mars 2022.
Damon hefur verið tíður gestur á Íslandi í tæplega þrjá áratugi og hefur á þessum tíma verið innblásinn af náttúru þess og landslagi. Nýja verkið hans er afleiðing af þessari ást hans á Íslandi og mun hann flytja þetta mjög svo persónulega verk með hópi tónlistarmanna. Tónleikarnir eru hans fyrstu á Íslandi í 25 ár.
The Nearer the Fountain, More Pure the Stream Flows var skrifað og samið að fullu á Íslandi. Nafnið er fengið frá ljóðinu Love and Memory eftir John Clare..
Damon Albarn er söngvari, lagahöfundur og tónskáld og einn af stofnmeðlimum Blur, Gorillaz og The Good, The Bad & The Queen.
12. nóvember 2021 gaf hann út plötuna The Nearer The Fountain, More Pure The Stream Flows. Hægt er að nálgast eintak af plötunni hér: https://linktr.ee/smekkleysa
Umsjón: Sena í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík
Með stuðningi frá ICELANDAIR og ÍSLANDSHÓTEL