Hymnodia heldur að vanda jólatónleika í Akureyrarkirkju 22. desember kl. 21.
Með kórnum leika Eyþór Ingi Jónsson stjórnandi kórsins og organisti, Kristján Edelstein gítarleikari og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir sellóleikari.
Þar verður gott að slaka á, hlýða á fallega tónlist í kyrrð og ró og leyfa hátíðleikanum að streyma í hugann.