Tix.is

Um viðburðinn

Abbey road, hljómplata Bítlanna fagnaði 50 ára afmæli síðastliðinn september. Við það tækifæri flutti hljómsveitin Dúndurfréttir plötuna í heild sinni fyrir fullum Eldborgarsal í Hörpu og heppnaðist einstaklega vel. Nú ætla strákarnir í Dúndurfréttum að koma með þetta sama prógramm á Græna Hattinn og flytja plötuna í heild sinni ásamt öðrum sérvöldum Bítlalögum.

Come together, Something, Here comes the sun, Golden Slumbers og öll hin frábæru lögin. Andi fortíðar mun svífa yfir þetta kvöld og strákarnir lofa einstakri skemmtun og eftirminnilegu kvöldi í faðmi tónlistar Bítlanna.

Sérstakir aðstoðarmenn og hljóðfæraleikarar þetta kvöld verða þeir Haraldur V. Sveinbjörnsson og Helgi Reynir Jónsson.