Tix.is

Um viðburðinn

Sæta svínið gastropub býður upp á hrikalega skemmtileg námskeið í bjór- og matarpörun sem eru tilvalin fyrir alla; einstaklinga, pör og vina- eða starfsmannahópa.

Smakkaðir eru 11 tegundir af sérvöldum bjór með 11 mismunandi smáréttum og farið yfir galdurinn að para saman bjór og mat.

Um námskeiðin sér sælkerinn og bjórgúrúinn Sveinn Waage. Sveinn hefur kennt við Bjórskólann frá stofnun hans 2009 og er einlægur áhugamaður um pörun á mat og bjór enda eru að hans sögn, „möguleikarnir óendanlegir, útkoman oft óvænt og frábær.“

Hann mun leiða námskeiðið með sína alkunnu glettni og gleði í forgrunni.

Þetta verður ekki bara ljúffengt og spennandi, heldur líka skemmtilegt.

Meðal rétta sem eru smakkaðir:

Risarækjur í hvítlauks-White Ale bjórsósu
Flatkökur meistarans, léttgrafin bleikja með rjómaosti
Nautacarpaccio með döðlum, rucola-mayo og parmesan
Lamba tataki með reyktum osti og ruccola mayo
Baby Back svínarif með bjór-BBQsósu
Rib eye steik með bearnaise-froðu
Súkkulaðikaka "NEMISIS" bökuð á 90°C


Námskeiðin eru haldin á fimmtudögum klukkan 16.00 og standa í c.a. tvo og hálfan tíma.

Verð 10.900 kr. á mann. Aldurstakmark er 20 ár.

Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 555-2900.