Tix.is

Um viðburðinn

Dúndurfréttir héldu stórkostlega tónleika haustið 2019 þar sem þeir fluttu meistarastykkið Abbey Road í heild sinni í tilefni af 50 ára afmæli plötunnar. Nú ætla þeir loksins að endurtaka leikinn, en fyrst stóð til að endurtekningin færi fram 28.mars

Athugið að vegna samkomutakmarkana eru aðeins 800 miðar í boði. Sóttvörnum verður fylgt í hvívetna samkvæmt gildandi sóttvarnareglum –  þar sem hægt verður að framfylgja fjarlægðarmörkum og nóg pláss fyrir alla tónleikagesti.

Plata Bítlanna – Abbey Road kom út þann 26. september árið 1969 og því eru rétt um 50 ár liðin frá því þetta meistaraverk Bítlanna leit dagsins ljós. Í tilefni af stórafmælinu ætlar strákarnir í Dúndurfréttum að flytja Abbey Road í heild sinni í Eldborg í mars 2020.

Abbey Road kom út, eins og áður sagði, árið 1969 og var í raun síðasta plata Bítlanna. Let It Be kom út seinna en upptökum á þeirri plötu var lokið áður en vinnan hófst við Abbey Road. Fór hún rakleiðis á toppinn í flestum löndum heims og var t.d. í 17 vikur í efsta sætinu í Bretlandi. Platan hefur nú selst í yfir 30 milljónum eintaka og er enn að seljast gríðarvel.

Það verður því enginn sannur Bítlaaðdáandi svikinn af að mæta í Eldborg laugardaginn 3. október þar sem andi Bítlana mun svífa yfir salinn.

Umsjón: Tónleikur ehf