Tix.is

Um viðburðinn

Sushi Workshop á Sushi Social hafa svo sannarlega slegið í gegn og búið er að bæta inn nýjum dagsetningum fyrir árið 2021.

Á námskeiðinu geta allir tekið byrjandaskrefin í að verða sushi-meistarar og smakkað gómsætt sushi með léttvíni.
Workshopið er frábært fyrir sushi unnendur og hentar fyrir pör, vina- og starfsmannahópa.

Um kennslu sér Daníel Cochran yfirmatreiðslumaður ásamt sushisnillingum Sushi Social.

Á námskeiðinu fá þátttakendur almenna fræðslu um sushi og læra að rúlla sína eigin maki rúllur. Smakkaðar eru fjölbreyttar tegundir af sushi parað með vínglasi og auðvitað haft hrikalega gaman.

Meðal rétta sem eru smakkaðir:
Surf´n turf
Amazon
2 tegundir af nigiri
Hot Maguro

Þátttakendur taka heim allt sushi sem þeir gera á workshopinu
– 3 tegundir af rúllum og 2 tegundir af nigiri.

Workshopin eru haldin á þriðjudögum milli 16 og 18.30 og kosta 8.900 kr. á mann.

Aldurstakmark er 20 ár.

Allar frekar upplýsingar eru veittar í síma 568-6600.