Tix.is

Um viðburðinn

Magga Stína flytur lög og ljóð Megasar ásamt hljómsveit og kór. Gestir eru Didda, Sigrún Eðvaldsdóttir, Bjöggi Gísla á sítar og hljómsveit sem skipuð er valinkunnum tónlistarmönnum á borð við Matthías Hemstock, Jakob Smára Magnússon, Daníel Friðrik Böðvarsson og Tómas Jónsson. Einnig stíga á stokk þrír kórar; Kammerkór Suðurland, Vox Populis og Söngfjelagið undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar og einnig Brasssveitin Látún.

Tónlist Megasar skipar einstakan sess í íslenskri þjóðarvitund og framlag hans til íslenskrar tónlistarsögu og textagerðar er í einu orði ómetanlegt. Á þessum tónleikum hljóma lög hans og ljóð af löngum og ævintýralega fjölbreyttum ferli – eins og Fílahirðinn frá Súrín, Gamli sorrí Gráni, Tvær stjörnur, auk þess sem flutt verða lög Megasar við nokkra Passíusálma Hallgríms Péturssonar.

*Ath að vegna óviðráðanlegra orsaka kemur Björk Guðmundsdóttir ekki fram á tónleikunum sem gestur, eins og fyrirhugað var.