Auður og UN Women á Íslandi.
Í yfir 100 löndum er nauðgun af hendi maka ekki talin refsiverð.
í 45 löndum eru engin lög til sem vernda konur gegn heimilisofbeldi.
Önnur hver stúlka í Malaví hefur verið þvinguð í hjónaband fyrir 18 ára aldur.
Þann 25. nóvember mun AUÐUR halda einlæga og innilega tónleika í Hannesarholti. Auður mun þar koma fram með Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni píanóleikara sem mun spila á glæsilegan Steinway flygil sem var sérvalinn inn í Hannesarholt ásamt Svanhildi Lóu Bergsveinsdóttir á slagverk og Matthildi Hafliðadóttir í meðsöng og bakraddir.
Allur ágóði af seldum miðum rennur til verkefna UN Women í Malaví sem vinna að því að uppræta þvinguð barnahjónabönd.
Lágmarksverð fyrir miða er 5000kr, einnig er boðið upp á miða á 7.500kr og 10.000kr.
Einnig má leggja málefninu lið með frjálsum framlögum.
Frekari upplýsingar hægt að nálgast í gegnum info@icelandsync.com