Tix.is

Um viðburðinn

Allt í gangi er splunkunýtt uppistand úr smiðju Jakobs Birgissonar og Jóhanns Alfreðs. Þeir Jakob og Jóhann taka fyrir almennt dægurþras í bland við persónulegri málefni á skotheldri kvöldstund.

Jakob Birgisson kom sem stormsveipur fram á sjónarsviðið síðastliðið haust með frumraun sinni, sýningunni Meistari Jakob sem um tvö þúsund gestir sóttu. Síðan þá hefur Jakob haft gamanmál að atvinnu og skemmt fólki um land allt. Jakob skrifar um þessar mundir Áramótaskaupið 2019.

Jóhann Alfreð hefur skemmt stórum hluta þjóðarinnar í yfir tíu ár með uppistandshópnum Mið-Íslandi en sýningar hópsins eru orðnar hátt í fimmta hundruð talsins.

Sjón er sögu ríkari!